Dramb Er Falli Næst
28.02.2010 12:08:42 / Geir

Ekki að það komi mér mikið á óvart

En fæ ekki trygginguna endurgreydda á morgun. Ég vildi það væri vegna drykkjuláta
Já og svo var krötum og aðkomufólki hafnað í prófkjöri íhaldsins. ekkert nýtt þar á ferð.


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.02.2010 19:26:37 / Geir

úff drama

stelpan sem tekur við að mér hérna í íbúðinni er flutt inn. kærastinn dömaði henni og hennti öllu dótinu hennar hingað. svo hún lyggur vælandi í stofunni hinum meginn við hurðina mína. Er ekki að nenna þessu. Full mikið eitthvað sem mér finnst ekki vera mitt mál.

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.02.2010 20:25:36 / Geir

á morgun

fer ég útí sveit að elda fyrir fallegustu stelpu sem ég þekki.
og pabba hennar...


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.02.2010 20:38:23 / Geir

síðunni hefur borist bréf

Ende...


» 6 hafa sagt sína skoðun

30.11.2009 16:56:34 / Geir

hitt og þetta

Í próflestri nennir maður flestu. eins og að fara í ræktina og þrífa. allt sem sat á hakanum þegar tími var nægur, er bráðnauðsynlegt.
Ég til að mynda fékk mér nýjan tandernpartner. en það eru svona félagar sem hafa áhuga á að læra íslensku og um leið læri ég af þeim þýsku. Ég viðurkenni alveg að ég nennti ekki að fá mér gæja. enda er þetta fyrirtaks fyrirkomulag til að gera hluti sem myndu kallast kærustuparslegar athafnir, en eru það samt ekki. þaes skreppa á söfn og út að labba og spjalla.

Ég flýg til noregs í næstu viku í 2 daga. hlakka ekkert til. þoli ekki að fljúga og verra þykir mér að taka próf. Ætla hitta 2 norskar jentur þó. Önnur tilkynnti mér það strax og ég hringdi í hana að hún væri komin með kærasta. en ég er soddan lúði að ég hafði samt sem áður áhuga að hitta hana í spjall. enda eini vinur minn úr hagfræðinni þarna. já ætli það sé ekki nægilega langur tími liðinn að við séum orðnir vinir núna. Ég á samt eflaust eftir að haga mér eins og bjáni.

Sambúðin hérna í Berlín gengur fínt fyrir sig. ekki hægt að kvarta yfir mér, þegar ég þríf alltaf íbúðina, fer út með ruslið og vaska alltaf upp eftir mig. En það er dáldið kallt alltaf, þetta er jarðhæð og gólfið er alltaf kallt og það er oftast hlýrra úti.

Ég er samt kominn með nett leið á þessu öllu saman, þetta verður svo leiðinlegt eitthvað. labba eða hjóla sömu leiðina í skólan. fer heim og læri og hangi eitthvað á netinu. Það er lítið varið í það að geta keypt bjór á undir 100kr ísk. þegar maður þarf eginlega að halda sér edrú fyrir námið.

Ég veit, allir að vorkenna mér fyrir að búa í Berlín.
    


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.11.2009 16:32:12 / Geir

Föstudagur

fyrir viku fékk ég flensu. gæti verið svínaflensan, allavega lá ég rúmfastur. Það er alltaf gaman að móka, dreyma sama drauminn aftur og aftur þangað til maður heldur að geðveikin hafi tekið mann föstum tökum. Hann var um litinn rauður.

Skólinn gengur ágætlega. ég mæti í tíma og svona. það er gríðarlega mikil tímasókn. hver 6 eininga kúrs er með 4 klukkutíma kennslu. svo tam á fimmtudögum er ég nær samfelt frá 10 til 8 um kvöldið. þetta er þvílík breyting frá noregi þar sem maður var bara í þremur tíu eininga kúrsum. og að jafnaði 4 klukkutímar á viku.

Fyrsta prófið er 2 des. 50 prósent áfangapróf í kúrs sem er á phd stigi, þarf að spíta í lófana. það eru 3 vikur í það...

annars er ég lítið búinn að djamma undanfarið. kann ágætlega við að djamma lítið þessa dagana. það er orðið dimmt kl 5, en sem betur fer kemur sólin kl 7 á morgnana. það auðveldar allt.

Ég kynntist stelpu í skólanum og hún hjálpaði mér að grafa upp gamla pennavininn gegnum þýsku útgáfuna af facebook. Annars hef e´g meiri áhuga á bekkjarfélaganum. Ég var orðinn langeygður eftir því að sjá "venjulegar" stelpur. Þetta andlits pearcings og bleik hár var orðið full þreitt. Stelpurnar í skólanum eru ansi myndarlegar. Meirr að segja dæmakennarinn minn er mega heit. Hvað get ég sagt. sætar klárar stelpur með ekki of mikið meik... just turns me on.

Ég keypti mér flug heim í jólafríinu. lendi 18, og fer 8. ég hefði eflaust getað flakkað um meiginlandið fyrir þennan pening. en það er eginlega ekki hægt að meta jólin til fjárs.

Já. svo vill ég taka það fram að mér finnst pólitíkin á íslandi á óskaplega lágu plani.     


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.09.2009 14:22:53 / Geir

þýsku kosningarnar

Eru í dag.
ég hef ekkert fylgst með þeim. enda stefnir í ævintýralega litla kjörsókn hérna. ég vildi að skólinn væri byrjaður en svo er ekki. þannig að stúdentar hafa ekkert getað hist og æpt.

Það er dáldið síðan litið var á stúdenta sem eitthvað hreifiafl í stjórnmálum. stúdentaráð tam í HÍ er hlægilegt. Engar nýjar hugmyndir þar á bæ. baráttan stendur um að koma í veg fyrir að fólk þurfi að borga fyrir bílastæði. Í Íran virðast stúdentar og kvennmen vera orðið hreifiafl.

En já. ég fékk á endanum húsnæði. Leigi hjá 23 ára franskri stlepu sem er að vinna á bar. Hún vinnur alla daga og kemur heim um nótt svo ég sé hana bara í hádeginu stundum. Þegar ég byrja í skólanum býst ég ekki við að sjá hana yfir höfuð.

Berlín er töluvert áhugaverðari en Osló. Ég flaug frá Noregi án þess að stíga fæti á konugslóðina. Það voru nokkrar ástæður fyrir því. Ég fyrirlít konungsfólk sem telur sig valið af guði til að segja fólki hvernig það á að lifa. Fæðist fyrirfram valið af guði. og hin meginástæðan að þetta var álýka merkilegt og hús í grafarholti á að sjá úr fjarlægð.

Loksins er umræðan komin upp um að setja á almennilega auðlindaskatta. En þeir hafa tvöföld áhrif, annars vegar að skattleggja mengun og not á auðlindum. og þannig stuðla að betri nýtingu. þá með skattlagningunni er hægt að draga úr (hér verður þá slept að skattleggja meira) íþyngjandi sköttum.


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.08.2009 13:05:36 / Geir

Vesen á vesen ofan

Ég er vanalega mjög kærulaus. Pæli oft ekkert í sumum hlutum. Til að mynda pæli ég ekkert í íþróttum og finnst celebs kjánaleg. Kannski finnst mér bara sum celebs flott, eins og gáfað fólk. allir að tapa sér yfir því að heimsmetið í 100m hlaupi hafi fallið. Með sterum, súrefnistjöldum, fæðubótarefnum hljóta íþróttamet að falla. Manni finnst þetta bara ekkert merkilegt.

Nema hvað. ég týndi staðfestingarskjalinu frá Humboldt til að mynda. og það er ástríkur og þrautirnar 12 enn eina ferðina að fá það aftur. þar er eitthvað númer sem ég á að hafa við höndina...

Svo kom ég hérna klifjaður töskum á mánudginn, tók strætó. þvínæst lest, og svo leigubíl í íbúðina "mína" kom í ljós að hann ætlaði að sýna mér íbúðina ekki hleypa mér inn þarna á mánudeginum.

Þannig ég enda á hótelherbergi, allt með þýsku tala. og klámrásirnar sýndu bara skjáauglýsingar sem Leoncí hefði þótt pent.

Eftir smá hugs hringdi ég í gæjan sem var búinn að lofa mér að leigja á vikubasis. Hugsaði að ef í vesta falli gæti ég verið á hótelinu í 3 daga og þá væri ég kominn með hærri reikning en vikan, og samt ekki 100% að ég fengi íbúðina.

Það kom svo á daginn að var rétt þegar gæjinn sendir mér sms og ég fékk ekki íbúðina.

Ég fór þá í gær yfir allar lausar íbúðir í klukkutíma labbfjarlgæð frá skólanum. sendi 180 ímeils um að mig langaði að búa með viðkomandi. þetta var eins og einkamál a gröðu sunnudagskveldi. Nema ég eyddi 6 klukkutímum í þetta.

Fólk kvartar að ég ætli ekki að vera lengur en nokkra mánuði og ég segist ætla vera í 4 ár. satt skal segja veit ég ekkert hvað ég vill. eftir að hafa bara verið 2 vikur á íslandi fannst mér það vera allt of stutt og er með hugmyndir að fara vinna á íslandi eða eitthvað. eftir master.

Svo hér er ég búinn að vera. Hjá honum Mete Öcal. sem er tyrki og verkfræðingur sem vinnur hjá einhverju ráðgjafafyrirtæki. Við fáum okkur gras á mánudögum. bjór hina dagana.

When in rome. do like the romans.
when in Berlin smoke some weed.

Fer að hitta svo fólk í kvöld sem ætlar kannski að búa með mér næsta árið.
Ég sendi bara stelpum skilaboð.
Skoðaði nefnilega íbúð hjá einum 20 ára strák í vikunni og mig langar ekkert að búa í strákaíbúð. huges íbúð og það var allt allt í drasli. samt sagði hann að kærastan sín væri að flytja út.

Ég vill ekki búa með gæjum sem bíða sífelt eftir því að mamma sín komi og þrífi.




» 1 hafa sagt sína skoðun

10.08.2009 20:33:05 / Geir

Afþví ég á að vera læra

Það bloggar ekki skapaður maður lengur. Facebook drap bloggið og mysapce. myspace var hvort eð er leiðinlegt. staður fyrir perra til að skoða myndir af stlepum. Hvernig veit e´g það?

Próf á miðvikudaginn. Er orðinn rólegur fyrir það. kannski full rólegur en who cares. Ég tæmi herbergið svo í vikunni og fer út á laugardaginn eða föstudaginn. Ætla reyna fá smá að vinna áður en ég fer en á flug á mánudaginn. Það kostaði ekki mikið 12 þús kall. og má taka með mér 50 kíló af farangri.
Fór á djammið um daginn. Dró vinkonu mína af vistinni með mér, daðraði dáldið við hana. þrátt fyrir að hafa lofað kærastanum hennar að gera það ekki...
Svo þegar við komum heim sagði hún við mig að hana langaði ekki upp í herbergi til kærastans síns. ég bara faðmaði hana og kysti á ennið góða nótt... í próflestrinum eru svona smáatriði sem ásækja mann. Allt er betra en að vera hugsa um það hvernig solow módelið er.

Svo ég ætla draga hana aftur á djammið næstu helgi. og kannski vera búinn að koma mér annað svo ég þurfi ekki að rekast á kallinn hennar.

en best að fara lesa Dynamic Analysis of structural change and productivity measurement. Afþví það er svo mikið skemmtilegra en leggja grunn að för til helvítis.


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.07.2009 11:08:08 / Geir

Miðvikudagur 29 júlí

Þetta er grámygludagur.
    Eftir að hafa legið uppí rúmi í 2 daga eftir að ég kom út og vorkennt sjálfum mér að vera í þessari borg sem ekkert er að sjá og það kostar hálf námslánin að kaupa sér bjór fór ég að læra. Í dag er þungskýjað. Það hefur verið þungskýjað ausandi rigning með hléum.
    Ég gerði lokaatlögu að gamla deitinu. Ég mátti sum sé ekki deita hana lengur afþví besti vinur hennar bjó heima hjá henni og var þessi dramadrotning yfir því að hún væri að deita annan mann. Hvort hann vildi ekki missa sitt fag hag eða eitthvað, það er eitthvað sem ég mun ekki fá svar við. Ég hefði bara átt að lúberja hann.
    Jæja ég heimsótti hana fljótlega, tók tölvuna hennar með mér heim sem var í lamasessi og gerði við hana, hún var ofsa glöð og bauð mér í mat og vídeó í staðinn. Þar hafði ég sparað henni dýr kaup. Við hlustuðum á músík skoðum myndir af hjólaferð hennar og mömmu hennar um norður Noreg og horfðum svo á Vicky cristina Barselona eitthvað. Þegar myndin var búin spurði hún mig hvort við gætum verið vinir. Ég sagði að það væri eiginlega ekki hægt. Ég væri enn hrifinn af henni og ætti mjög erfitt með að bara hanga með og gera eitthvað svona vinalegt bara. Eftir nokkur faðmlög var mér hent út.
    Ég er því búinn að brenna allt að baki mér í Osló og get farið frá Noregi.
    Ég er kominn með herbergi eða loforð um herbergi í Berlín frá miðjum ágúst. Það er hjá strák sem eingöngu vill leigja stelpum... En sárlega vantar pening og ég kaupi af honum herbergið á vikubasis í mánuð. Meðan ég leita mér að öðru og hann sér að fag hag. Kannski leifi ég honum að lakka á mér táneglurnar og ég enda á að búa þar í allan vetur. Held að karlmenn ættu bara að búa með öðrum karlmönnum en ekki einhverjum vinkonum. Ég leigði t.a.m. einu sinni með stelpu. Hún vill ekki einu sinni vera vinur minn á fésbókinni í dag.
    Ég verð húsnæðislaus 15 ágúst. Sem er sami dagur og síðasta prófið getur mögulega verið á. Þ.e.a.s. prófdagsetningin er ekki komin en prófin eru samt öll í vikunni 10-15 ágúst. Svo ég verð vonandi bara kominn til berlínar á svona 17 18 ágúst. Veit ekki hvað ég hefði getað unnið mikið eða hvort ég get unnið veit það ekki. Kannski bara skítaveður eins og er búið að vera og ég tekjulaus.
    Ég hef verið í rannsóknarvinnu á Absinth drykkju og áhrifum hennar. Mér sýnist á öllu að þetta sé bara fínt mál. Enda er planið að kíkja á einn Absinth pöbb eða tvo þegar út er komið. Dreg kannski meðleigjandann á almennilegt fyllerí og þá hættir hann að reyna ná sér í konur sem sofa í næsta herbergi. Kannski verða íslensku bringuhárin of mikið kúltúr sjokk að hann mun ekki vilja leigja kvenmönnum framar.

» 2 hafa sagt sína skoðun

19.07.2009 17:16:42 / Geir

Í osló á ný

Hundleiðst. var allt of stutt á íslandi og náði nú ekki einu sinni að hitta alla.

Sem betur fer er bara þægilega heitt núna og rygning. er að reyna læra undir þessi veikindapróf. Búinn að vera með þrálátan hausverk síðan ég kom, ástæðan er bara sjokk sem líkaminn varð fyrir að fá allt í einu rautt kjöt, nammi og bjór. hrundi svoleiðis í það á fimmtudaginn fyrir flugið. Reyndi við fertugar kellingar og talaði um pólitík, oft á sama tíma á ölstofunni.

Írskir dagar voru frekar góðir. kom heim. valt úr flugvélinni, seldi tóbak upp í ferðakostnað. Var svo ölvaður að ég át hráa lambalærisneið um nóttina og þeytti poppi um allt eldhús.

Þrátt fyrir fögur fyrirheit um að fleka íslensku kvennþjóðina var hún almennt látið í friði.

Ég er búinn að eyða helginni að skoða íbúðir í berlín og reyna átta mig hvar skólinn er staðsettur og hvar ég á að sækjast eftir að finna leiguíbúðir. Skólinn er staddur í "Mitte" sem er í austur berlín, við Marx Engels Forum, og svo Alexanderplatz. svo íbúðir þar í grend ættu að vera ódýrari en í gamla vestur berlín. styrkurinn sem ég fæ frá esb dugar fyrir sómasamlegu húsnæði svo maður er að reyna finna sér húsnæði sem tottar ekki. en jafnframt ekki of dýrt.

Er orðinn ofsa spenntur fyrir þessu.


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.07.2009 12:18:35 / Geir

Achtung!

Felið dætur og kærustur. Ég lendi á morgun.

» 1 hafa sagt sína skoðun

30.06.2009 08:24:43 / Geir

ógeðslega heitt

þegar ég hef verið í útlöndum þar sem er heitt, hefur maður notið þess að búa við loftkælingu og næserí. ég er hreinlega að deyja úr hita núna og eflaust svona 30+ í herberginu mínu nuna. það er heitara inni en úti..
ég hata noreg núna og vill heim í rokið


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.06.2009 09:19:18 / Geir

best að blogga aðeins

Gussa frænka hefur svo gaman að blogginu

Maður bloggaði mun meira fyrir tilkomu akveðinnar "samfélags" síðu á netinu.

En hef haft alveg nóg að gera eftir að prófum lauk. hef verið að vinna að ritgerðinni og vinna. vann tam í gær í 15 tíma, og er orðinn hálf þreittur á því að reykja ekki. Reykingaliðið sest niður í pásur en ég held áfram. mætti í gær kl hálf níu og settist niður klukkan tíu um kvöldið þegar eldhúsinu lokaði.

Annars er ég frekar ósáttur með útkomuna úr þróunnarhagfræðinni, skrifaði 13 bls ritgerð í prófinu en afþví ég notaði ekki módelið sem var í námskeiðinu (sem mér fannst ekki þess virði að nota) var það notað til að lækka einkunina hressilega. þannig ég held ég skrái mig aftur í það næsta vor.
Hvort ég rífi kjaft er svo spurning líka. En ég hef nú ekki grætt á því síðan í stærðfræði 323 hjá Eika Guðmunds þar sem ég hækkaði mig uppí 9 afþví hann skildi ekki skriftina mína.

Annars er ég á leiðinni á Echo and the Bunnymen tónleika eftir viku, fyrsta sinn sem ég kaupi mig inn á tónleika hérna úti. Býst ekki við því að það verði fleiri tækifæri í lífinu til þess.
Það verða reyndar vonandi fleiri tækifæri til þess að fara á Írska daga. en ég sleppi samt ekki þeim næstu. Kem á föstudaginn 3 júlí og missi af götugrillinu en næ lopapeysunni. verð í 2 vikur og næ vonandi að gera eitthvað af mér.




» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 113
Könnun
3dja önnin


Heimsóknir
Í dag:  36  Alls: 208280
Leitarbox