Dramb Er Falli Næst
29.05.2009 15:49:04 / Geir

Nettó áhrifin

hafði sótt um skattkort á netinu. það er víst hægt að sækja um margskonar skattkort en ég sá aldrei neinn möguleika og aldrei kom skattkortið.
fer niðrá skatt í morgun og þar lendi ég í miklu stappi við embætismenninna.
Hvað ætlarðu að hafa miklar tekjur??? uh ég veit ekki kannski 50 þúsund (1 milljón isk) hvaða máli skiptir það?
sko ef þú ert með meira þarftu að borga okkur skatt en annars borgum við þér!
þá spyr ég já en eru nettó staðan ekki sú sama?
nei það er betra að við borgum þér en þú borgir okkur.

það er sum sé margþrepa skattur hérna. en maður gefur fyrirfram upp hvað maður ætlar að þéna yfir árið og fær þá skattkort.
en kommon skiptir þetta einhverju máli. er maður sektaður fyrir að vinna of mikið???
fyrirheitna landið. með óskiljanlegt skattkerfi.


» 6 hafa sagt sína skoðun

22.05.2009 22:11:38 / Geir

Ræktin

Búinn að vera rosa duglegur í ræktinni, en hef aðeins fallið í tískuna sem er hérna í noregi






» 0 hafa sagt sína skoðun

14.05.2009 13:22:49 / Geir

Alger lúði

Svo ég var ragur að spyrja dæmakennaran. Aðalega að þegar hún svaraði mér í ímeili þá komst ég að því að hún vinnur með gamla deitinu.

Nema ég banka hjá henni áðan og hún er í næsta herbergi og segir að hún sé búin að týna lyklunum að skrifstofunni sinni og við getum því ekki farið yfir dæmin þar. svo ég sit með henni á kaffistofu kennarana og ég átti bara andskoti erfitt með að bjóða henni út innan um hina kennarana/doktorsnemana.

Ætli ég endi ekki bara á að ímeilinni.

Eða bara horfi á Weird Science og læri að búa til konu.



» 5 hafa sagt sína skoðun

11.05.2009 15:13:39 / Geir

Fór áðan

Og bankaði uppá hjá dæmakennaranum mínum til að bjóðenni út á deit.
Reyndar var ég með eitthvað dæmi sem ég var að pæla í svona sem afsökun.
Hún var ekki við.
reyni aftur á morgun. læt vita.


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.05.2009 10:07:29 / Geir

nýja vinnan

Ætla skrifa ritgerðina í sumar. en jafnframt er ég hálf þreittur á blankheitinu svo ég tók vinnu á útsýnisveitingastað. Ég vinn úti og baka pizzur, grilla og geri kjúllasallöt. fyrsti dagurinn var í gær. þá var opnað fyrir útigrillin. ég mætti kl 11. svona smá túr um húsið og svona. svo stóð ég á haus frá 12 til 8 um kvöldið. þurfti ekki einu sinni að míga ég svitnaði svo mikið.
En var með 6 þús kall á tíman fyrst það var 1 maí og a einum degi safnaði ég fyrir húsaleigunni og á eftir 12 þús íslenskar. er reyndar alveg búinn á því. er ekki 17 ára ennþá.



» 3 hafa sagt sína skoðun


Könnun
3dja önnin


Heimsóknir
Í dag:  39  Alls: 208387
Leitarbox